laugardagur, febrúar 10, 2007

1

Jæja, þá er ég búin að vera fullorðin í eitt ár. Ár síðan ég flutti að heiman og alla leiðina til Odense.
Þetta er búið að vera fínt.
Verður vonandi bara betra annað árið.

mánudagur, janúar 29, 2007

BLOGG

Guð minn góður já ég skal blogga!

Sorrí hvað það er langt síðan ég bloggaði síðast. Hef enga afsökun.

Þar sem þetta er fyrst bloggið á árinu er þá ekki rétt að rifja aðeins upp 2006.
Margt gerðist. Ég man fæst.

Eeeeen það sem stóð uppúr er eftirfarandi:

-Ég flutti til Danmerkur!
-Útskrifaðist úr menntaskóla.
-Fékk milljón moskítóbit!
-Tók fullt af ljósmyndum = Fékk mér nýtt hobbý.
-Fór í silfursmíði og ákvað hvað ég ætla að gera í framtíðinni.
-Klappaði broddgelti og rottum.
-Mjókkaði hellings.

Æ hvað maður man ekkert merkilegt þegar maður ætlar að telja svona upp. En við fengum fullt af góðu fólki í heimsókn til okkar 2006 og vonumst til þess að sem flestir komi og kíki á okkur í ár :D Það er svo gaman að sjá ykkur dúllurnar mínar!

En jámm það sem af er að árinu hef ég bara verið að vinna og taka ljósmyndir mér til dundurs.
Silfursmíðin er allveg að klárast. Síðasti tíminn núna á miðvikudaginn. Þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegt námskeið. Held að það muni gagnast mér fullt í náminu mínu. :)

Jæja, ætli ég hermi ekki eftir Furðu og skelli inn eins og nokkrum myndum sem ég hef verið að taka.

þriðjudagur, desember 19, 2006

Komin!

Hellú,

Eins og kannski flestir vita eru ég og Jói komin í heimsókn á klakann. Það er búið að vera ágætt svona að mestu leiti enn sem komið er. Fæ að hitta hana Andreu mína á morgun og hlakka allveg svakalega til. Svo fékk ég líka svaka fína klippingu hjá henni Sigrúnu systur Jóa í dag, og er orðin allveg agalega sæt og mikil skvísa. Já og ef einhver vill/ þarf að ná í mig þá er ég með mitt gamla íslenska númer og ef þið eruð ekki með það í símum ykkar getið þið bara sent mér póst og beðið um það.

Annars sé ég ykkur vonandi sem flest ef ekki bara öll næstu vikur og daga.
Og ef það verður ekki fyrir jól, segi ég bara GLEÐILEG JÓL!

sunnudagur, desember 10, 2006

Partímyndir úr afmæli Gorms !!!



Svona var ég sæt áður en við fórum út úr húsi :P

Hérna sjáum við Emil, frænku hans Kim sem er á bakvið hana og svo Mikael

Mikael aftur og Frank og fyrv,kærastan hans Gorms sem ég man ekki hvað heitir

Anders og Simon hommi, veit reyndar ekkert um það...en það bendir allt sterklega til þess.

Hálfur Gorm, Jói og 1/4 gaur sem ég man ekki hvað heitir

Gaurinn sem er allveg eins og Einar eðlisfræðikennari í MH og fyrv.kærasta Gorms

Kim, Crazy görl, Mikael og já hún.

Gormur með getnaðarlega svipinn sinn

Ég og Emil. Við erum jafngömul og næst yngst í þessu partíi :D
Hahaha þetta er hann Frank. Hann lamdi sig í hausinn með bjórdós þar til það blæddi. Fínn gaur!

Jói og ég í svaaaaka stuði!

Moi, Gorm afmælisbarn og gaurinn sem ég man ekki hvað heitir

Símon rokkari lét sjá sig undir lokin og Anders sniglaðist á bakvið hann.

þriðjudagur, desember 05, 2006

Koma svo!

Það er slatti af liði sem les þetta blogg en kommentar aldrei. Nú er tækifæri til þess að bæta úr því og kommenta svo rækilega að allar fyrri syndir verða fyrirgefnar. Svarið þessum lauf létta (föttuðuð þið þennan?) spurningarlista sem ég stal af honum Uk.Kekkonen.
Koma svo!

1. Miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veikur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

laugardagur, desember 02, 2006

Stemning og svona

Síðustu helgi var kveikt á jólaljósunum í miðbænum í Odense. Við létum okkur að sjálfsögðu ekki vanta og kíktum á stemninguna. Þið getið ýtt á hlekkinn hér fyrir neðan til að kíkja á vídjó af herlegheitunum. Annars er ekkert að frétta í rauninni. Akkúrat 2 vikur í það að við komum til Íslands :D Stuð!


VÍDJÓIÐ

sunnudagur, nóvember 12, 2006

Tzjörmaní og fleira.

Góðan dag!

Við skelltum okkur til Þýskalands með hverfinu okkar á laugardaginn.
Þetta var bara ljómandi skemtileg ferð. Borguðum 160 dkk fyrir að fá að fara með.
Helmingurinn af fólkinu sem fór var reyndar svoldið svona pakk...mikil læti í þeim, og sumir orðnir varanlega fjólubláir í framan. En það er víst svona fólk allsstaðar.
Í rútunni var glens og gaman. Spiluðum BINGO sem í Danmörku heitir BANKO af einhverjum furðulegum ástæðum. Skrítnu danir. Jói vann vasaljós og ég vann voða fínan blómavasa :) sem kom sér vel því ég átti engan slíkan.Hann Jóhann Ingi var samt ekkert hoppandi kátur þegar ég sagði honum að nú þyrfti hann að fara að kaupa blóm handa mér.
Þessir karlmenn.

Jæja þegar við komum í Scandinavian center þá fórum við fyrst í kaffiteríuna og fengum okkur ágætis mat, áður en við fórum að versla.
Það var sko brjálað að gera þarna. Raðirnar náðu frá kassanum og út í vegg hinumegin í búðinni, og þetta er sko ekkert lítil búð. Eftir drykkjar og matar innkaupin fór ég svo í snyrtivörurnar og í dótið. Keypti mér voða fínt púður og ekta varalit, bæði frá MaxFactor.
Ekkert svona gloss dót sko, enda á ég fullt af svoleiðis. Fannst ég verða að eiga einn svona ekta dömulegan varalit. :P
Svo tók við rútuferð heim með tilheyrandi látum í fullum ruslaralýðs dönum.

Eftir að heim var komið og fólk búið að drösla vörunum sínum inn, var hittst í Fælles-húsinu.
Þar fengum við pítsur og svona. Spjölluðum aðeins við nágrannana og sumir eru allveg hið vænsta fólk.
Einn hafði mikinn áhuga á að fara til Íslands. Ég sver það að íslenska ríkið ætti að borga mér laun fyrir að kynna Ísland fyrir útlendingum
Nær allir sem ég hef talað við um Ísland eru núna allveg á því að fara þangað í sumarfrí næsta sumar. Einn, hann Gormur, er meira að segja að fara að flytja þangað í hálft ár.
En já svo talaði hann Jói við mann er heitir Finn allveg heil lengi og þetta er víst bara ótrúlegur gaur.
Hann hefur víst gert allt! Á einhver 10 hús og 3 sumarhús og hann á 15 bíla, hefur dáið þrisvar sinnum og er uppfinningamaður!
Annað hvort er hann ótrúlegasti maður sem við munum nokkurntíman hitta eða þá að hann er sá allra sjúkasti lygari sem við munum nokkurntíman hitta.
Við sjáum hvað setur ;)
Þetta var víst í fyrsta sinn sem einhver út ungdómshúsinu tekur þátt í svona samkomu á vegum íbúafélagsins. Ég held að fólki hafi bara líkað ágætlega við okkur, enda erum við svo sæt og góð
:)

En já eins og ég sagði þá borguðum við 160 dkk fyrir okkur bæði. Innifalið í því var rútan, maturinn í þýskalandi, pítsurnar, fullt af bjór sem við máttum fá í rútunni, og svaka fín verðlaun í BINGO-inu.
Ekki slæmt ef þú spyrð mig.

Svo seinna um kvöldið fórum við í eitthvað afmælispartí hjá stelpu sem heiti Cindy.
Það var svona lala. Ég var allavegana orðin svolítið þreytt svo mér fannst gott að koma heim og kúra.
En já ég fékk að ávarpa Árshátíð Baggalúts í gegnum símann. Það var gaman. Sakna þessara ruglukolla fullt mikið.Það er svo gaman að skemmta sér með þeim.
Það er líka rosalega gaman að opna póstkassann sinn klukkan tvö að nóttu og finna þar pakka frá mömmu sinni.

Hún elsku bestasta móðir mín var að senda mér allskonar tangir og þjalir til að nota í silfursmíðinni!
Hún er sko bestasta mamman í öllum heiminum! Og ég elska hana svoooooooooooooooooona mikið!

Annars er ekki mikið fleira að frétta. Jólin á næsta leiti...æi kannski ekki allveg. En maður þarf að fara að huga að jólakortum og gjafakaupum og svona.

Rétt rúmur mánuður í Íslandið!

Jibbí!